Við erum nú komin með nýja síðu www.123.is/patrikogisabella endilega kíkið á hana:) :)

RockYou FXText - Get Your Own


Um mig:
Patrik Dagur Sigurðsson fæddist þann 16. febrúar 2005 kl. 2.08 um nóttina og var 12 merkur (3075 gr) og 50 cm. Ég kom öllum á óvart þegar ég kom í heiminn eftir 38 vikna meðgöngu þannig að mamma og pabbi þurftu ekkert að bíða eftir mér. Ég er algjör engill og bestasti stóri bróinn á svæðinu:) Ég er á leikskólanum Smárahvammi og deildin mín heitir Álfhóll og að mínu mati er ég orðinn fullorðinn:)

Ísabella Sól og fæddist þann 17. nóvember 2006 klukkan 00.08. Ég lét sko bíða aðeins eftir mér og fæddist eftir 41 vikna meðgöngu. Ég er líka algjör engill og yndislegasta litla systirin á svæðinu:) Ég er byrjuð á leikskólanum Smárahvammi með bróa mínum og deildin mín heitir Hvammkot:) ég er rosa dugleg á leikskólanum eins og stóri brói:)

Mamma okkar heitir Steinunn Gerður (´82) og pabbi okkar heitir Sigurður Ingvar (´81) og eru þau að sjálfsögðu stoltustu og ríkustu foreldrar í heimi:)




Annað:
Hvernig á að fallbeygja nafnið mitt:)

nf. (hér er) Patrik Dagur
þf. (um) Patrik Dag
þgf. (frá) Patrik Degi
ef. (til) Patriks Dags

Hvernig á að fallbeygja nafnið mitt:)

nf. (hér er) Ísabella Sól
þf. (um) Ísabellu Sól
þgf. (frá) Ísabellu Sól
ef. (til) Ísabellu Sólar


Heimasíðurnar hjá vinum okkar:)
Ninja Tíbrá sæta
Benjamín og Ísak
Elvar Örn
Elísa Alda
Emilía Ósk og Magnea Dís
Íris Antonía
Ísak Máni og Harpa Sóley
Jóel Uni
Tómas Nói og Arney
Kolbrún Eva, Sandra og Andrea
Aron
Eiríkur Ingimar
Sara Björk
Ágúst Ingi


Það sem börnin kenna okkur...
Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...

Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,
þá er betra að gera það bak við sófann...

Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf
borðað grænmeti þegar hann var lítill...

Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,
þá ætti þér ekki að líka það heldur...

Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma
og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,
þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...

Stundum þarftu að taka prófið
áður en þú lýkur við að læra...

Ef þig langar í kettling,
þá skaltu byrja á að biðja um hest...

Það er engin skynsamleg ástæða
fyrir því að föt þurfi að passa saman...

Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,
þá skaltu breyta honum í hund...

Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...

Bankaðu bara áfram...og áfram...
þar til einhver kemur til dyra...

Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...

Búðu reglurnar til jafnóðum...

Það skiptir engu máli hver byrjaði...

Haltu fast í það sem þú vilt...

Spurðu "af hverju?" alveg þangað
til þú færð svar sem þú skilur...

Bæn til ykkar elsku krúttin okkar
Himneski, góði Guð og faðir. Við þökkum þér fyrir þessi yndislegu börn sem þú hefur gefið okkur og trúað okkur fyrir. Við þökkum þér, að þú hefur styrkt og varðveitt móður þess og lofað okkur að lifa þessa hamingju. Við erum of veik og vanmega til þess að gæta þessa lífs, sem þú hefur tendrað af okkar lífi. Við biðjum þig, algóði faðir, að vaka yfir þeim og vaka yfir okkur, svo við getum með þinni hjálp annast þau vel og stutt þeim til þroska. Göfga þú ást okkar, helga dagfar okkar og heimilislíf, svo að helgur andi þinn umvefji þessi börn, veki og glæði allt gott, sem þú hefur fólgið í sálu þeirra.



Til ykkar krúttin okkar...... Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til.

Patrik Dagur - Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar


Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.

Ísabella Sól - Sporðdreki
24. október - 21. nóvember


Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.








Elsku mamma og pabbi!



Ég er með svo litlar hendur,

ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.


Fæturnir á mér eru svo stuttir,

farðu hægar,svo að ég geti fylgt þér eftir.


Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,

ég skil það ekki.


Horfu á mig þegar ég tala við þig,

þá veit ég að þú ert að hlusta.


Ég hef viðkvæmar tilfinningar.

Ekki vera alltaf að skamma mig,leyfðu mér að gera mistök án
þess að mér finnist ég vera vitlaus.


Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða

rúmið sem að ég bý um verði fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.


Munda að ég er bara barn,en ekki fullorðin vera.

Stundum skil ég ekki það sem þú segir.


Ég elska þig svo mikið.

Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,

ekki fyrir það sem ég geri.!




MAMMA ER KONAN.....


Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn

fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og

ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað

meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum

fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma

manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel

um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með

útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,

þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst

með manni þegar það er gaman að vera til.


MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!




PABBI ER MAÐURINN....


Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að

það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.


En það tekur hann bara nokkra daga að komast

niður á jörðina aftur.


Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað

sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og

annað fólk.


Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður

aðeins eldri og það er hægt að fara að leika

við mann og kenna manni ýmislegt finnst

honum rosa gaman.


Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar

á þarf að halda.


PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!




EINKARÉTTUR SMÁBARNA


Ef mér finnst það flott, þá á ég það

Ef ég held á því, þá á ég það

Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt

Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það


Það sem börnin kenna okkur...

Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...


Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,

þá er betra að gera það bak við sófann...


Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf

borðað grænmeti þegar hann var lítill...


Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,

þá ætti þér ekki að líka það heldur...


Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma

og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,

þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...


Stundum þarftu að taka prófið

áður en þú lýkur við að læra...


Ef þig langar í kettling,

þá skaltu byrja á að biðja um hest...


Það er engin skynsamleg ástæða

fyrir því að föt þurfi að passa saman...


Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,

þá skaltu breyta honum í hund...


Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...


Bankaðu bara áfram...og áfram...

þar til einhver kemur til dyra...


Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...


Búðu reglurnar til jafnóðum...


Það skiptir engu máli hver byrjaði...


Haltu fast í það sem þú vilt...


Spurðu "af hverju?" alveg þangað
til þú færð svar sem þú skilur...






Þú ert gestur nr. 43474